Þegar við lásum fréttir af þjóðarpúlsi Gallup að fjórðungur þjóðarinnar hefði mikinn kvíða út af Covid-19 fannst okkur það gríðarlega hátt hlutfall þó svo að það komi ekki beint á óvart. Fólk upplifir streitu og kvíða vegna þess að það eða aðstandendur gætu veikst og/eða í kjölfar efnahagslegra ástæðna sem óhjákvæmilega fylgja. Við getum ekki […]
Monthly Archives: March 2020
Það er ljóst að þegar sængur vega mörg kílógrömm að það getur verið erfitt að búa um á hefðbundinn máta. Við fengum lánað eftirfarandi myndband sem sýnir sniðuga og fljótlega leið til að setja sængurver utan um slíkar sængur eða teppi.
Afar skiptar skoðanir eru meðal fólks hvernig sæng er best að nota og þar er ekkert eitt rétt sem gildir fyrir alla. Það skiptir miklu máli að hver og einn velji rétt fyrir sig þegar kemur að því að kaupa sæng eða dýnur. Þess má geta að talið er að allt að tveir þriðju Breta […]
Við erum að kynna CURA Pearl sængina í dag á Pop up markaði í Kringlunni frá 13-18. Endilega kíkið við hjá okkur og prófið að leggjast undir sængina. Dagurinn í gær var mjög skemmtilegur en við hittum helling af fólki og margir prófuðu að fara upp í rúm. Sjáumst á eftir!
Það hefur aðeins borið á því að teknar hafi verið of miklar þyngdir af sængunum. Framleiðandi gefur upp 10-15% af líkamsþyngd og mælir frekar með að vera nær 10% en 15% því að meiri þyngd er ekkert endilega betri. Við viljum að kaupendur noti sængina frekar en að það þær lendi uppi í skáp lítið […]
Það er okkur sönn ánægja að tilkynna samstarf við ADHD samtökin, Einhverfusamtökin og SPOEX (samtök psoriasis-og exemsjúklinga). Samkvæmt samningnum munu Vitar ehf., eigandi Sofðu rótt, styrkja þessi þrjú samtök um hlutfall hverrar seldrar CURA Pearl sængur. Skipting og upphæð styrks til hverra samtakanna fer eftir vali kaupanda. Kaupandi þarf að velja í greiðsluferlinu hvaða samtök […]
Við ætlum að vera á Pop up markaði í Kringlunni um næstu helgi, 7. og 8. mars. Þar verðum við með allar þyngdir af sængunum okkar og rúm til að leggjast í og prófa sængurnar. Við hvetjum alla áhugasama til að koma og prófa. Sýnum einnig kodda og Climabalance sængur. Við erum búin að fá […]