Við bjóðum upp á margar mismunandi tegundir af sængum sem hafa ólíka eiginleika. Cocoon de Luxe sængin er hönnuð fyrir þá kulvísu.
Sængin er hönnuð þannig að hún aðlagar sig að líkamanum og liggur þétt við hann. Tvöföld uppbygging sængurinnar gerir það að verkum að það er eins og að um tvær sængur sé að ræða með auka einangrun á milli til að koma í veg fyrir hitatap. Þá er fótasvæðið haft hlýrra.
Cocoon de Luxe sængin er í mjög háum klassa, með 800 cuin Pomeraniu dúni og er ytra byrðið úr sérlega léttu mako-batiste 250 100% bómull.