Samstarf við ADHD samtökin, Einhverfusamtökin og SPOEX

Það er okkur sönn ánægja að tilkynna samstarf við ADHD samtökin, Einhverfusamtökin og SPOEX (samtök psoriasis-og exemsjúklinga).

Samkvæmt samningnum munu Vitar ehf., eigandi Sofðu rótt, styrkja þessi þrjú samtök um hlutfall hverrar seldrar CURA Pearl sængur. Skipting og upphæð styrks til hverra samtakanna fer eftir vali kaupanda. Kaupandi þarf að velja í greiðsluferlinu hvaða samtök hann kýs að Vitar styrki.

Um árabil hafa félagsmenn þessara þriggja samtaka notast við þungar sængur til að ná fram betri hvíld og líðan. Því miður hefur verð á þungum sængum verið afar hátt og því ekki á færi allra að njóta þeirra. En sem betur fer er verðlagning CURA Pearl sængurinnar afar hagstætt.

Endilega notfærið ykkur kynningarafsláttinn sem verður til og með 8. mars og látið ofangreind samtök njóta góðs af!

0

Your Cart