Athyglisverður dagur í dag…

Við settum inn færslu í gær þar sem við sögðum að dagurinn í dag yrði frábær fyrir neytendur. Við erum alveg á því að það sé akkúrat málið enda er fjöldinn allur af netverslunum með frábær tilboð sem má sjá inni á 1111.is og heimapopup.is

Dagurinn í dag er hins vegar búinn að vera frábærlega erfiður hjá okkur 😲 (erum ekki að biðja um vorkunn). Við fengum mikla umferð inn á síðuna hjá okkur strax um miðnætti sem gerði það að verkum að síðan okkar hrundi. Við erum með hýsingu hjá stórum erlendum aðila sem er með 24/7 þjónustu þannig að þeir fóru strax í að redda málunum. Við viljum ekki tala illa um aðra en það sem gerðist var að sá sem aðstoðaði okkur gerði mjög stór mistök. En hann mælti með breytingu á áskrift sem fól í sér að síðan er flutt á annan server og átti það að skila sér í mun hraðari síðu. Við spurðum hvort að það myndi hafa niðritíma í för með sér en svo átti ekki að vera þannig að við ákváðum að drífa í breytingunni. Til að gera langa sögu stutta þá var þetta alls ekki rétt og er síðan loksins komin upp eftir að hafa legið niðri í 14-15 tíma. Við teljum að það hafi ekki verið rétt staðið að þessu breytingum og niðritíminn hefði átt að vera mjög stuttur. Við teljum líka að röð mistaka hafi átt sér stað hjá hýsingaraðilanum og því ætlum við skipta þeim út fyrir íslenskan hýsingaraðila.

Það er ennþá Singles day og verður það hjá okkur út föstudaginn. Þ.e. út af þessum niðritíma og klúðri ætlum við að lengja afsláttartímann til 23:59 þann 13/11. Það gæti orðið eitthvað smá hikst á síðunni okkar í kvöld en það ætti ekki vera langur biðtími.

Við þökkum fyrir alla þolinmæðina en fjölmargir hafa sent okkur skilaboð og hringt í okkur 😍

0

Your Cart