Vörulýsing
Ytra byrði: 100% bómull, 200TC
Fylling: Litlar gler perlur (sílikon)
Þyngd: 3-13 kg
Hversu hlý: Létt (cool)
Litur: Hvítur
Stærð: 135*200 cm
Sængin þolir að fara í þvottavél við 60°C en það má ekki þurrka hana í þurrkara
Mælt er með að þyngd sængurinnar sé um 10% af líkamsþyngd. Ef um alvarleg svefnvandamál og/eða mikinn kvíða/áhyggjur er um að ræða þá getur borgað sig að velja meiri þyngd eða sem svarar 15-20% af líkamsþyngd.
Þegar þyngingarsængur fyrir börn eru valdar er m.v. aldur barns. Ástæðan fyrir því er sú að þyngd teppisins dreifist á minna líkamssvæði en hjá fullorðnum. Þá þarf barnið að vera nógu sterkt til að færa sængina af sér og því á alls ekki að nota þær fyrir börn yngri en 2 ára.
- 2-3 ára – 3 kg
- 3-6 ára – 5 kg
- 6-14 ára – 7 kg
Sonja (verified owner) –
Þessi sæng er algjör snilld. Keyptum hana fyrir 4 vikum síðan fyrir 11 ára son okkar, sem hefur alltaf komið uppí ef hann hefur þá á annað borð náð að sofna í sínu rúmi. En ekki lengur því frá fyrsta degi hefur hann sofnað í sínu rúmi og sofið þar alla nóttina. Þegar hann vaknar þá er hann hressari svo það virðist sem hann nái betri hvíld með hana.
Þóra Jónasdóttir (verified owner) –
Ég keypti þessa sæng fyrir rúml. 3 vikum og þvílíkur munur! Er fljótari að sofna og sef svo miklu betur. Get sko alveg mælt með þessari sæng 100%. Er jafnvel að spá í að fá mér teppið. 🙂