og þess vegna höfum við ákveðið að breyta skilmálunum okkar fyrir CURA Pearl þyngingarsængurnar til auðvelda okkar viðskiptavinum að taka ákvörðun því oftast snýst ákvörðunin um val á milli tveggja þyngda.
Við höfum ekki auglýst það sérstaklega en allt frá því að við byrjuðum að selja CURA Pearl sængurnar þá höfum við lánað öllum þeim sem þess óska í 7-14 daga. Það hefur heilt yfir gengið afar vel og nánast allir sem hafa fengið sængur að láni hafa ákveðið að kaupa þær.
Við höfum heldur ekki auglýst að við höfum í nokkrum tilfellum skipt út þyngdum, í flestum tilfellum úr þyngri í léttari.
Eftirfarandi breytingar eru gerðar á skilmálum fyrir CURA Pearl sængurnar:
- Hægt er að hætta við kaup á CURA Pearl sænginni innan 14 daga eða skipta í aðra þyngd
- Skiptin eru kaupanda að kostnaðarlausu sé um breytingu á einum þyngdaflokki að ræða (þ.e. minni þyngd)
- Sé það fullreynt að CURA Pearl henti alls ekki þá endurgreiðir Sofðu rótt sængina 100% í formi inneignar
Helstu ástæður þessara breytinga eru:
- Við viljum veita okkar viðskiptavinum eins góða þjónustu og mögulegt er og auðvelda þeim kaupin
- Við viljum fækka lánum eins og kostur er vegna sóttvarna. Þess bera að geta að allir sem hafa fengið lánað hjá okkur undanfarið hafa fengið nýja sæng eða nýþvegna sæng úr þvottahúsi