Það er okkur sönn ánægja að geta lagt okkar að mörkum til góðgerðarmála. Við ákváðum að styðja við ADHD samtökin, Einhverfusamtökin og SPOEX (Samtök psoriasis-og exemsjúklinga) þegar við byrjuðum að flytja inn CURA sængurnar snemma í vor. Við kaup á CURA vörunum geta kaupendur valið að Sofðu rótt styrki eitt þessara þriggja samtaka.
ADHD samtökin hafa tekið á móti fyrsta styrknum upp á 150.000 kr. Við vonum að kaupendur verði áfram duglegir að merkja við eitt þessara þriggja samtaka til að þau njóti góðs af samstarfinu.
Á myndinni eru Hrannar B. Arnarson, framkvæmdastjóri ADHD samtakanna og Arnar Þór Jónsson, eigandi Sofðu rótt.