Við ætlum að vera á Pop up markaði í Kringlunni um næstu helgi, 7. og 8. mars. Þar verðum við með allar þyngdir af sængunum okkar og rúm til að leggjast í og prófa sængurnar. Við hvetjum alla áhugasama til að koma og prófa. Sýnum einnig kodda og Climabalance sængur.
Við erum búin að fá frábær viðbrögð undanfarna daga sem styrkir okkur í þeirri trú að vinsældir sængurinnar á Norðurlöndunum séu ekki að ástæðulausu. Um það bil 20 mánuðir eru núna síðan sængin kom á markað í Svíþjóð og m.v. sölutölur frá framleiðanda þá getum við nánast fullyrt að hún sé söluhæsta sængin frá því að hún kom á markað enda er fólk þar farið að þekkja kosti þess að sofa með þunga sæng.